Angelcare 1100 barnavakt með myndavél
Skynjaraplata-
Skynjaraplatan fylgist með öllum hreyfingum barnsins og lætur þig vita
með hljóði hafi engin hreyfing er skynjuð í 20 sekúndur.
Video í lit-
Fylgist með vöggunni í beinni útsendingu án þess að opna hurðina og vekja barnið.
Hægt er að breyta stefnu myndavélarinnar eftir hentusemi.
Dag og nætursjón-
Innrauða myndavélin getur sýnt þér hvað gerist í herberginu öllum stundum – líka á næturna!
Þetta er einstaklega gott þegar maður vill ekki hætta á að vekja barnið með óþarfa lýsingu.
LCD snertiskjár-
Mamma og pabbi geta breytt stillingum á tækinu með einu handtaki á 2.75" snertiskjánum.
Tal milli tækja-
Með Angelcare AC-1120 getur þú ekki einungis heyrt í barninu þínu heldur getur þú rætt við það
og róað barnið með því að nota móttökutækið sem talstöð.
Hitastigið í lagi-
Innbyggður hitamælir fylgist með lofthita í herbergi barnsins og lætur þig vita þegar hann fer út fyrir sett mörk.
Hvort sem það er of kalt eða of heitt.
Ekkert suð og engar truflanir-
Tækin eru alveg laus við truflanir og suð og hægt er að velja um 8 rásir á tækinu til að tryggja bestu hljómgæðin.
Farðu á ferð og flug með móttökutækið-
Það er með hleðslurafhlöðu og því algerlega óháð snúrum og köplum!
Drægnin er líka mjög góð eða allt að 200 metrar við góð skilyrði.
Fallegt næturljós-
Innbyggt næturljós gefur þæginlegan og mjúkan bjarma frá sér –
sérstaklega hentugt þegar maður vill sinna barninu án þess að vekja það að fullu.
Engar áhyggjur-
Sérstök stilling kveikir á eiginleika sem lætur þægilegt „tikk“ hljóð fara í gang.
Með þessu getur þú fullvissað þig um að tækið virki þrátt fyrir að barnið sofi ljúft.
Alltaf í sambandi-
Drægnin er frábær á tækinu, allt að 200 metrar við góð skilyrði.
Ef tækið missir samband lætur það þig vita – strax!
Ekkert óvænt-
Ólíklegt er að rafhlöður tækisins verði tómar þar sem tækið lætur þig vita
þegar það er kominn tími til að setja þær í hleðslu.
Þysja inn og þysja út-
Hægt er að þysja inn svo þú sjáir barnið betur.
Færanlegur þrífótur-
Stilltu myndavélina til að ná sem besta sjónarhorni af barninu þinu-og í góðri fjarlægð frá barninu. Frábært að geta fylgst
með barninu inn í herbergi og þegar það vaknar!
Næmni plötunar-
Gerir þér kleift að stilla næmni plötunar eftir þínum eigin þörfum frá 1-5.
Að finna foreldratækið-
Mjög auðvelt er að finna foreldratækið því aðeins þarf að ýta á einn takka og þá er leitin auðveld.
Teljari-
Hægt er að velja teljara til að fylgjast með hversu lengi barnið sefur eða vakir.
ATH! Börn hafa hengt sig í snúrum og er því gríðarlega mikilvægt að ganga frá snúrunni rétt.
Hérna eru leiðbeiningar um hvernig skal ganga á frá snúrunni með öryggishlíf
Hérna eru leiðbeiiningar um hvernig skal ganga frá snúrunni án öryggishlífar
Þeir sem vilja öryggishlíf yfir snúruna sem kemur úr plötunni og fer í móðurtækið geta nálgast það þar sem tækið var keypt.
Notkunarupplýsingar